KarítasGissurardóttir

KarítasGissurardóttir ! :o)

25.09.2008 22:43:18 / karitasg

Háskóli !

Hahaha... Ég verð að taka það fram að Íris er snillingur !! En já ég háskólaneminn Karítas, sem drekk háskólabollu og á háskólavini, ákvað að blogga fyrir "ykkur hin" eins og Íris vill kalla ykkur :)

En já sumarið er víst búið, New York er búið og lífið komið í rútínu aftur. Sem sagt, já, skólinn er byrjaður !! Og ég er opinberlega orðinn háskólanemi, víí !

Námið er fínt, mis áhugaverðir áfangarnir ! En fyrsta árið er víst oftast minnst spennandi, þannig ef ég kemst í gegnum þetta þá er afgangurinn bara djamm (sko skóladjamm ekki drykkjudjamm) :haha: Er einmitt að fara í fyrstu vísindaferðina á morgun, mega spennt !! En samt sjúkt mikið að lesa alltaf, og erfiðar ritgerðir og svona "auka leiðindi" hehe djók ! Getur líka verið gaman að læra, td einn tími sem ég elska útaf lífinu og hlakka alltaf mega mikið til að fara í hann 8)

Svo er ég og Rebekka mega duglegar í gymminu og erum í vaxtamótun og brennslu (man ekki hvað þetta kallast) hjá Halldóru og magaæfingatímum hjá Bryndísi ooooog, æhj man ekki hvað hún heitir... Júúú Hönnu Þóru !! ;) Mega gaman, og aldrei að vita nema að þetta árið verðum við loksins mega skvísur ! :$ Maður er víst alltaf að taka sig á og vera duglegur í gymminu, en maður er alltaf sama bollan :( heheh, jáá... núna er komið að því, haha :haha:

Maggi á afmæli á laugardaginn, 28 ára gamall haha ;) Allir að knúsa hann og kyssa... hann er knús og kossa sjúkur :klikk: En við ætlum bæði að vera þunn á afmælisdaginn, ég eftir vísindaferð og hann menningarferð ! ohh við erum svo vísindamennignalegt par :p

En já annars ætla ég að setja inn myndir frá nýnemadjamminu og afmælinu hennar Rebekku :)

Svo gerðist rosalega sorglegt í fyrrdag, "afi" Halli, afi hennar Bergþóru dó ! :(:s Og ég vildi óska að ég gæti knúsað hana núna !! Og votta allri fjölskyldunni hennar samúð !
Það voru nú ófá hádegin sem hann eldaði ofan í okkur Bergþóru hérna í denn, og allur tíminn sem fór í að skoða nælusafnið hans, og pennasafnið !!

Endilega kommentiði ef eitthver skoðar bloggið mitt enþá, gaman að sjá hvernig halda í vonina um blogg og kíki enþá !

Kossar og knús HáskólaKarí :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.07.2008 21:58:12 / karitasg

Sumarið.

Ég hef sem sagt komist að því að Hafdís Mjöll er sú eina sem les bloggið mitt ! :) Klapp fyrir henni ;)

Þannig Hafdís mín, ég ætla að blogga fyrir þig :haha:

Annars þá er sumarið bara að verða búið 8| Og laaangi tíminn sem ég var ekki námsmaður og var að vinna er að verða búin ! Ég á sem sagt bara 2 vinnudaga eftir ;) Er í fríi á morgun og föstudaginn :haha::haha: Á morgun ætla ég bara að sofa út, kannski baka horn og fara svo til rvk á hraðlestrarnámskeið... Maður verður víst að fara í svoleiðis ef maður ætlar í háskóla :þ Og svo ætlum við í útilegu á föstudaginn og koma heim á sunnudaginn :) Við ætlum með Bryndísi, Ingvari og Íris Örnu og Rúnari og Eddu... Ætlum bara að fara þar sem besta veðrið er ! 8) Hlakka alveg rosalega til, þessir 2 frídagar eru alveg búnir að halda í mér lífinu.. úff !

Svo var kokteilapartý síðasta laugardag... Það var rosalega gaman... NEMA, (já ég ætla bara að segja það og mér er alveg sama...) mér fannst GLATAÐ að sumar stelpurnar hafi bara tekið sig til og ákveðið að fara til rvk kl 12 !! Vá kokteilapartý snýst einmitt um það að vera bara stelpur og djamma SAAAAMAN !! Ekki koma í hálftíma og fara svo bara og láta ekki einu sinni hinar vita svo þær gætu líka reddað sér fari eða e-h (þó svo að við hefðum ekki farið) Og ég er ekki sú eina sem er bitur og leiðinlegt því öllum sem voru eftir fannst þetta glatað... Og þar hafiði það !

Og já plús það að reglurnar eru eitthvað farnar að snúast fyrir sumum... málið er að ALLIR koma með flösku og setja á borðið og allar drekka allt saman. Sumar voru eitthvað fúlar og sögðust sko ekki ætla að koma með áfengi svo "þær geti drukkið það" humm... ef þú kemur með flösku þá ert þú að drekka úr henni + úr okkar.... 

En já... vildi bara koma þessum biturleika frá mér ! :) Vonandi verður næsta kokteilpartý bara skemmtilegra en þetta, og að allar komi í kokteilpartýið til að vera í kokteilpartýinu og skemmta sér :þ Ekki það að við skemmtun okkur ekki eftir að hinar fóru.... Var þrusu gaman og allar vel í því sko ;)

Svo styttist alltaf og styttist í NY, get ekki beeeeðið... shit ! :haha::haha:

En annnars bara... Njótið þess sem eftir er af sumrinu, það flýgur alltof hratt frá :cry:

Í júní síðastliðnum greindist Þórhildur Nótt Mýrdal, dóttir Steinunnar Bjargar Gunnarsdóttur og Jóns Gunnars Mýrdal með sjúkdóm er kallast Spinal Muscular Atrophy eða SMA (vista), til eru 4 flokkar af þessum sjúkdóm og er Þórhildur með flokk 1 sem er jafnframt sá hættulegasti.
Hún þarf á bæði lyfjagjöf og sérfræðiþjónustu að halda svo ekki sé minnst á tækjabúnað.
Þetta kostar allt peninga og mikla umönnun beggja foreldra sem munu væntanlega þurfa að vera töluvert frá vinnu.
 
Viljum við því biðja alla sem eru aflögufærir að styrkja hana og fjölskyldu hennar með frjálsum framlögum.
 
Söfnunarreikningur Þórhildar er:
1118-05-250052 og kt. 120856-7589
 
Munum svo að margt smátt gerir eitt stórt.
 
Viljiði vera svo væn að áframsenda.


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.07.2008 12:27:58 / karitasg

Myndir :)

Það eru komnar myndir frá Írskum dögum ;)

Svo var ég að velta fyrir mér hvort það ætti ekki að fara að vera Kokteilpartý !?? :$


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.06.2008 12:17:41 / karitasg

Árgangsmót =)

Ætla nú ekki að hafa þetta langt í dag.
Bara láta vita að árgangsmótið var sjúkt gaman, gæti gert þetta  á hverri helgi :haha:
Oooooog það eru komnar myndir !! Vúhú :)

Bara takk allir fyrir frábært kvöld ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.05.2008 12:37:10 / karitasg

New York !!! :o)

Eins og áður sagði... ÞÁ ER ÉG AÐ FARA TIL NEW YORK !!! Og vááá mér hlakkar bara til sko 8)

Ég sem sagt fer 12 ágúst og kem heim 21 ágúst :haha: Stelpuferð :þ Fer með Rebekku, Kristínu, Veru og auðvitað verður Ásdís líka ;)

Þetta verður pottþétt alveg rosalega gaman og mikið stuð. Mikið verslað, mikið skoðað og mikið gert ;) Vonandi bara að maður komi ekki heim eins og sannur Ameríkani með hamborgararass og bingóvöðva :$

Svo er ég að fara í sumarbústað um helgina :) Bara ég og Maggi, heheh... "hárómantísk" ferð... haha :þ Sjáum til hvernig það fer !! En við förum strax eftir vinnu á föstudaginn (sem sagt kl 8 :frown: ) og komum heim á sunnudaginn. Vá þetta hlítur að vera rosalega gaman ;)


Svo er júróvision helgina eftir það... hverjir vilja vera memm í að hafa júróvision partý ?? :haha: Vonandi verður það fjölmennara en júróvisionpartýið mitt og Hafdísar í denn !! :$ hahahaha :haha:


Ég fór svo að hjóla um daginn... rosa gaman... fékk lánað hjólið hennar Bryndísar Gylfa... Og svo hjólaði ég líka á hjólinu hans Magga, það var rosalega gaman ! :þ En verst að ég skuli vera að fara í skóla, og á ekki efni á hjóli :( Þannig ef eitthverjir sjálfboðaliðar vilja gefa mér fullt af pening þá tek ég við þeim með opnum örmum ;) Ég er næstum því  tilbúin að bjóða blíðu mína fyrir hjól, hehe :þ

Og svo hætti ég við að fara í endajaxlatöku :$ hehe... algjör lúði, en þetta er víst ekkert bráðnauðsynlegt og þá finnst mér algör óþarfi að vera að lána pííííína mig svona óendanlega mikið !!!


En bless í bili... Kveðja, Heimsborgarinn Karítas :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.04.2008 15:29:28 / karitasg

Rock your body :)

Jæja... ég ætla að vera svo dugleg að blogga 2x í þessum mánðuði !! Klapp fyrir mér ;)

En á föstudaginn fór ég á fjölbrautaskólaball :haha::haha:
Og það var bara sjúúúúklega gaman !! Vá bjóst aldrei við að skemmta mér svona vel á fjölbrautaskólaballi, hehe fyrir utan það að ég hélt að þegar ég dimmiteraði að það væri síðasta ballið mitt :p En aldeilis ekki, þetta var þrusugaman... Og ótrúlega margir af mínum vinum að dimmitera, og við fórum fullt önnur... Bara takk fyrir frááábært ball, BARA gaman sko :p

Svo var farið á Mörkina... En það var bara ekki alveg jafn mikið gaman :p

Svo er bara alveg að fara að koma sumar... vííí mér hlakkar ekkert smá til !!
Þar sem að í fyrsta skiptið á ævinni fæ ég sumarfrí á launum !!! ;):haha: vííí
Og ég er að fara til NY !!! jébb þið sáuð rétt.... újé :p

Svo er líka árgangsmót... sjæææ.. hlakkar bara til :haha: Eina að það er á föstudegi, held að laugardagur hefði hentað betur.... Allir úthvíldir og svona, og þá eru eflaust færri að vinna ! :$
En það þýðir víst ekki að tuða yfir því :)

Svo var ég í endajaxlatöku á þriðjudaginn.. þá var einn tekinn, fer svo aftur 14 maí og annar verður tekinn, svo fer ég til sérfræðings og læt taka 3ja :whut:
Þetta er það versta sem ég hef upplyfað, og er byrjuð að fá martraðir (sko alvöru martraðir) um að ég sé aftur kominn í þennan ljóta tannlæknastól :cry:
Myndi ekki óska mínum versta óvini þennan sársauka... baaaaara vont !!

En ætla að segja þetta gott í bili ;)

Bæææææjó :klikk:


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 20:20:17 / karitasg

Háskólapía !! :)

Tjá !! :)

Ég er búin að sækja um í Háskólanum, ákvað bara að sækja um í dag, og velja það sem mig langar til að vera í dag :) Sem sagt ég sótti um í félagsfræði valdi það sem þið kusið síst, hehe !! En Bergþóra vildi þetta og ég geri allt sem Bergþóra segir mér að gera... eða svona næstum því :p

Þannig í haust verð ég svaka mega mikil háskólapía, víí ;)

Annars já... brjálað mikið að frétta því ég lifi svo sjúkt viðburðaríku lífi, eiginlega veit ekki hvar ég á að byrja !!

hehe, en síðast gleymdi ég að segja frá stelpukvöldinu okkar !! :) Ég, Hafdís Mjöll, Guðmunda og Erla fórum til Rvk og út að borða á... Madonnu minnir mig, það var mjög gott... Nema forrétturinn... og Eftirrétturinn !! hehe, en aðalrétturinn var sjúkt góður :haha: Svo fórum við í bíó, á Juno, og hún er geeeðveikt skemmtileg, váá... Bara allir verða að sjá hana !! :haha: Snilldar mynd !!

Svo var ég og Rebekka að byrja í leikfimi... Erum í, þolfimi held ég að þetta sé kallað !! Svona bland, ýmist pallar, stöðvar eða æfingar... Rosa gaman, er búin að fara í 2 tíma og púla og púla !! Kem heim sveitt og sæt :) Svo er ég líka með mömmu í salsaleikfimi einu sinni í viku !! Stelpan bara orðin svaka íþróttagarpur, hahah... kannski ekki alveg :)

Hmm... Páskarnir voru ekki eins skemmtilegir og ég hafði hugsað mér... Var bara veik alla páskana :( Borðaði samt páskaegg, og fullt af góðum mat, og fór að spila á sunnudeginum með Hafdísi, Erlu, Guðmundu og mökum :) Þannig ég svona reyndi smá að njóta þess að vera í fríi !! En Maggi greyið var á bakvakt og var nánast að vinna alla páskana :(

Svo var ég veik eiginlega alla vikuna eftir páskana, fór ekki í vinnu fyrr en á föstudeginum, og var þá enþá hálf slöpp !!

Sem sagt...

Ég mæli eindregið með stelpukvöldum og leikfimi ;)

En mæli ekki með veikindum og bakvöktum :klikk:

Jæja, nóg í bili af KaríHáskólaPíuGissurar




» 4 hafa sagt sína skoðun

18.03.2008 19:51:53 / karitasg

Aaaaaaalveg að koma páskar !! :D

Víííí alveg að koma páskafrí... Get ekki beðið... Frí fimmtudag og föstudag, vinna laugardag frí sunnudag og mánudag !!! :d

Já annars hæ ! :)

Ég er í svo miklum vandræðum... Hvað á ég að læra ??? Mér langar að læra félagsráðgjöf, og mér langara að læra félagsfræði og mér langar að læra kennarann !!! plís kjósiði í skoðunarkönnunni svo þið getið ísmæpein !! :$

Ég er milljón sinnum búin að fara á netið og skrifa umsókn og svo bara ohhh... get ekki ákveðið hvað ég er að sækja um !! Pirrandi :klikk:

Annars var kokteilpartý á föstudaginn, án efa minnsta kokteilboð sögunnar... vorum sárfáar ! :lol: En það var alveg hriiiiiikalega gaman ! :)

Svo eru alveg að koma páskar eins og ég sagði áðan, ég fæ hrísegg :d jammí, hlakka til, elska páskana... Maður fær að vera feitabolla og éta eins og maður vill af súkkulaði í heilan dag ! :haha: Allt eins gæti maður verið sendur í ferð til himnaríkis :p Bolla ???

En ég hræðist allt þetta "hrap krónunnar og læti" ég skil þetta ekki og fatta þetta ekki !! En eina sem ég veit er að allt er að hækka og allir sem eiga peninga eru að tapa og eitthvað rugl !! Bara talað um krepppu og eitthvað :s Ég sé bara fyrir mér fólk í ljótum fötum og niðurnýddum húsum og borða uppúr ruslafötum,... Voooonandi að það sé ekki að fara að ske :|

Annars ætla ég bara að eyða páskunum mínum í hrikalega mikið tjill og rólegheit !! Vona að þið hafið það gott líka :p

OG ALLIR AÐ KJÓSA OG HJÁLPA MÉR :haha:

Kv. KarítasGissurardóttir


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 19:43:29 / karitasg

Já sæl :)

Jæja maður verður að blogga eitthvað, og þá heimta ég líka fleiri komment :haha:

Annars er ósköp lítið að frétta sko !

Það sem stenudur kannski uppúr er Rottweilerballið sem við Hafdís fórum á ! Það var bara hörkustuð, byrjuðum bara 2 heima hjá Hafdísi ! haha sorglegar !? Og þegar mamma hennar fór að taka flöskurnar til daginn eftir hélt hún að það hafi verið fullt af fólki í "partýinu" !! haha :p Við erum nú meiri svelgirnir :$ Svo fórum við í vinnustaðarpartý hjá Guðmundu, mörkina og fá okkur skot, breiðin, eftirpartý hjá Guðmundu :)

Svo núna um helgina gerði ég ekkert !! Bara ekki bauuuun í bala ! Allir að vinna, í sumarbústað eða leikhúsi eða eitthvað álíka !! Ekki vinsælt fyrir mig ! :evil:

Svo var konudagurinn... Og mér var boðið út að borða, Maggi bauð mér í mat til mömmu sinnar !! haha ;) Sniðugur !? ... Hann var svo "veikur" eftir laugardagskvöldið að ég stjanaði örugglega meira við hann en hann við mig ! Ég legg bara til að konudagurinn verði næsta sunnudag á Garðabrautinni :p

Já en annars bara same old same old ! Vinna bara alla daga útí eitt...

Var geðveikt fyndið áðan kom lítill strákur inní búð og horfði á mig og sagði "hvaaa þú ert bara ALLTAF að vinna !!!" hahaha... krakkin komin með eitthvað ógeð af mér eða !? :p

Annars segi ég bara bæ í bili... Ég lofa að blogga meira :d


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.02.2008 12:34:35 / karitasg

árið 2008 :)

Guð minn góður... ég er ekkert búin að blogga á þessu ári... og það er kominn febrúar !!!

 

Afsakið, vona að eitthverjir skoði nú enþá svo ég sé ekki að blogga núna til einskiss !! :)

 

En það er nú margt búið að ske síðan ég bloggaði síðast !! Ég fór til dæmis á áramótaball með Hafdísi og Guðmundu og það var sjúklega gaman... þó svo að nánast enginn hafi veið á balli ! :) En segjum bara að það hafi verið fámennt en góðmennt ;)

 

Svo kom Bergþóra heim, og það var afskaplega ljúft að sjá hana og hitta :P

 

En það sem stóð uppúr var Danmerkur ferðin sem hann Maggi gaf mér í jóla- og útskriftargjöf ! Við vorum á alveg æðislegu hóteli (Kobenhavn Island hotel) það var rosalega flott ! Ég hef aldrei eiginlega verið á hóteli áður, algjör lúði, Maggi vildi sko meina að ég væri enginn heimsborgari :P  En við höfðum það alveg rosalega gott þarna úti, versluðum, fórum í kristaníu, á erótíkursafnið og guness safnið og svo versluðum við meira og kíktum út á kvöldin ;) Hefði ekki getað verið betra og skemmtilegra !!! :haha:

 

En já, við vorum frá miðvikudegi til föstudags og það var æði... Forum líka í bangsabúðina og uppfylltum gamlan draum... að búa mér til bangsa !!! Hann var æði, fékk nafnið Súper Dóra i höfuðið á Súpernum :)

 

hmm... já svo var 4ða kokteilpartýið laugardaginn í síðustu viku... ég, Bergþóra og helga héldum saman þetta skiptið heima hjá Þorgeiri og Pálu !! Og það var sjúklega gaman, eins og alltaf :haha:  Allir í kjól og blekaðir að vanda... eins og þetta á að vera !!

 

Heyriði já svo er ég líka búin að fara 2x að spila hjá Erlu og Fanna í janúar, það klikkar ekki frekar en seinni daginn ! :)

 

Svo á virkum dögum er ég bara að vinna og geri ekkert skemmtilegt !! :(

 

Er að setja inn myndir úr kokteilpartýinu og þær ættu að koma inn seinni partinn... Svo eru myndir nýjar myndir frá útskriftinni, jólunum, áramótunum og danmörku líka.. :)

 

Blessó, Karí...

 

ps: BOLLUR... Til hamingju með daginn :haha: 


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 15:32:15 / karitasg

Jólin :)

Ég er að fara til Köben, Ég er að fara til Köben, Ég er að fara til Köben !!!!

 

Já þið sáuð rétt, ég er að fara til Köben !! :haha:  Með Magga, Rúnari vini hans og Eddu kærustunni hans Rúnars ;) Maggi gaf mér nefninlega ferð til útlanda í jóla- og útskriftargjöf, bara sætastur :) En við förum 9 janúar og komum heim 13 !! Og þá verður sko straujað kortið, enda á maður það skilið enda bara búin að fá 3 frídaga yfir allar hátíðirnar ! :whut:

 

Annars vill ég líka bara þakka öllum kærlega fyrir mig, fékk fullt af fallegum jóla- og útskriftargjöfum ! :P  Alveg æðislegt bara, gæti ekki verið ánægðari :haha: Fékk draumaúrið mitt frá foreldrunum, DKNY semaliu úr sem mér er búið að langa í í svona ár eða eitthvað !! :D

Svo var æðislegt að fá Söndru og Sveinung heim um jólin... En þau fóru aftur í gær :cry:  Þannig þau verða ekki með okkur yfir áramótin, sem mér finnst frekar skrítið ! En þau lentu ákkúrat í vonda veðrinu og voru veður teft í fleiri fleiri klukkutíma á flugvellingum... Alveg glatað ! En þau komust heil á húfi heim :)

En annars er ég eiginlega ekkert búin að gera... bara vinna vinna og vinna ! Yfir öll jólin og áramótin fékk ég bara 3 daga í frí :frown:  En ég er að fara að fá frí þegar ég fer til Köben, og ég er svo bjartsýn (hahah fyndinn) að ég lít bara á björtu hliðarnar og verð ósköp ánægð þegar ég fæ útborgað ;)

 

hmmm... útskriftarveislan mín var líka alveg æðisleg ! Mamma mín er svo mikill snillingur :)  Og gerði þessa æðislegu veislu fyrir mig... Algjör perla :haha: 

 

Annars held ég að það sé ekki meira í bili !! :haha:

Góða skemmtun í kvöld og gangiði hægt um gleðinnar dyr... og umfram allt... ekki gera neitt sem ég myndi ekki gera ;) 


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 12:35:49 / karitasg

Jólafrí :)

Þá er ég komin í jólafrí :haha:

Fór í eitt próf, og er búin að fá að vita að ég náði því !! Þannig það er bara hamingja hér á bæ ;)  ÞAnnig þá er það opinbert, þann 21 desember 2007 verð ég stúdent !! vííí :P

Held ég sé búin að tala við allflesta sem ég ætla að bjóða í veislu... þannig að þeir sem ég er búin að ræða við eru væntanlega búinir að taka frá 21 des !! 8)

Var ekkert smá stressuð afþví mér fannst ég ganga svo illa... en auðvitað gat stelpan þetta !!!

Þannig núna er ég bara komin í Einarsbúðina og verð þar þangað til í haust... þá er bara að ákveða í hvað skóla maður ætlar og hvað maður ætlar að læra :$

 

Svo styttist óðfluga í jólin !! bara ákkúrat 2 vikur í dag ! Alveg ótrúlegt, ég á nú ekki mikið af jólagjöfum eftir... Allt að smella :P  Ohh ég elska jólin... Er nánast búin að pakka öllu inn, komin með jóla/útskriftarkjólinn og er bara nánast farin að bíða ;)

Svo er ég á sunnudaginn að fara á jólahlaðborð með Magga og fjölskyldunni hans ! Ég hef bara einu sinni áður farið á jólahlaðborð, hehe... maður er svo ungur og óreindur eitthvað ! :P En mér hlakkar rosalega til !! 

 Hmm... man eiginlega ekkert meira til að segja ykkur í bili !! 

 

Kv. Karí stúdent ;) 


» 10 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 12:01:47 / karitasg

Dimmitering ;D

Jæja dimmiteringin (dimmisjón) var á föstudaginn !! Shit baaaara snilld sko :haha:

Mér fannst allir í hópnum vera snillingar, dagurinn var snilld, dimimsjónið var snilld (að mínu mati amk), partýið um kvöldið var snill, ballið var snilld... bara endalaus snilld !!  :haha: Væri til í að gera þetta hverja helgi ;)

 Var reyndar óskaplega erfitt að fara fammúr kl 5:15 !! En hey, hvað leggur maður ekki á sig !! :P Svo var bara farið í fyrirpartý hjá Fríðu, málað sig og fengið sér smá :) Svo var þetta vanalega, vakið vistina, morgunmatur með kennurunum... Og Dimmisjónið :haha::haha: Voru ekki bara allir ánægðir með það ?? Margir sem komu til okkar og sögðu að þetta hafi verið bara eitt skemmtilegasta dimmisjón sem þeir hefðu séð, ekkert smá gaman að heyra það 8) En auðvitað eru ekkert allir sammála....

Svo fórum við í Laser tag, kringlunna og keilu ;)  Leiser tag var SNILLD, váá hefði aldrei trúað að þetta væri svona gaman :haha: En ég var samt eiginlega bara orðinn þunn kl 3, hehehe... alveg hrikalega léleg ! En þegar við komum heim fór ég bara í sturtu og klæddi mig í betri föt (ég veit, geðveikt léleg að fara úr búningnum) og svo var skellt sér í partý. Shit það var svo gaman, ég drakk bara 3 brezera og eitt bolluglas og váá, ég var vel í því :P hehe... Svo komu alveg 6 kennarar, sem er bara nokkuð gott !! Og eins og þið sjáið var orðið ansi heitt í kolunum þegar fór að líða að lokum í partýinu... berir strákar og stepur uppá borðum :haha:

Svo var ballið... og shit hvað þessir Dj-ar eru að gera sig, tónlistin var geeeðveik, ég sko fór ekki út af dansgólfinu !! Var líka orðin nett þreytt í fótunum þegar ég kom heim... eftir 20 tíma djamm, og mestan hlutann á háum hælum 8)

Enda rölti ég og sótti Magga ( leiðinlega kærastan sem bannar honum að vera með vinum sínum :P  ) og fékk tásunudd... Enda veitt ekki af, hélt að lappirnar myndu detta af mér :cry:

En svo á laugardeginum var ég EKKERT þunn... Bara næs sko :haha:

Svo fer skólinn bara að klárast... skrítið að þetta skuli bara vera síðasta vikan mín í FVA... úff !!! Maður er að verða svo fullorðinn ;)

En bara takk allir fyrir frábæran dag, þetta hefði ekki getað verið skemmtilegri hópur eða skemmtilegri dagur !! :haha: 

 

(það eru líka komnar myndir)

 

Kv. Karí næstum því stúdent :haha: 


» 12 hafa sagt sína skoðun

19.11.2007 15:15:00 / karitasg

Husky :)

Góðan og blessaðann daginn :)

 

Heyrðu auðvitað skellti maður sér á opnunarhátíð Breiðarinnar... Það lofaði góðu framan af, en svo var ónafngreindur fáviti sem var eitthvað reiður afþví hann hélt að kærastan væri að halda fram hjá sér að hann ákvað að gríta fullu bjórglasi útí loftið !!! OG jú auðvitað fór allt yfir mig og Írisi frænku... Alveg mín heppni !!!

 

En ég sver það þetta var mesti feggaskapur ever... MÉR ER DRULLULSAMA ÞÓTT KÆRASTAN ÞÍN HAFI SOFIÐ HJÁ 50 GAURUM Á SÍÐASTA KLUKKUTÍMA, EÐA EIGNAST BARN MEÐ BESTA VINI ÞÍNUM !!! ÉG Á EKKI SKILIÐ AÐ FÁ BJÓR YFIR MIG ALLA ÞÓ AÐ KÆRASTAN ÞÍN SÉ DRUSLA !!!

 

Og hvað haldiði, svo kom í ljós að þessi gella var ekkert að halda framhjá... aha, enþá minni tilgangur að vera að gríta bjórnum þínum.... FÁVITI !!!

 

Reyndar kom gæjinn og baðst afsökunar, en mér er alveg sama, ég fyrirgaf honum ekki !!! Útaf honum var ballið ónýtt fyrir mér og ég fór heim !!! Labbaði blaut heim í 50 stiga frosti og 80 vinstigum :$ 

 

 En jæja... ég er á lífi :) En er bara aðeins bitrari manneskja fyrir vikið, sem ég kannski mátti ekki við, heheh :P

 

Svo er dimmisjón á föstudaginn, vííí vííí :haha:  Auðvitað mæta allir, það er kl 10:50 á staðartíma ;) Og búningarnir eru bara svalir, þannig allir verða að mæta og koma og sjá !!!

 

Svo er ég búin að ákveða að vinna niðrí Einó eftir áramót. Og svo í kennó í haust !! :)

 

Annars er ég komin í geðveikt jólaskap, get ekki beðið eftir að bærinn verði allur í jólaljósum og svona næs... ahh !! Svo er ég náttlega að fara á jólahlaðborð á Hereford 15 des, hlakkar ekkert smá til. Fer með skvísunum (veit ekki alveg nákvæmlega hverjum) og Stebba !! Og það verður bara gaman :haha:

 

En jæja, nó í bili... kv. Frunsu Karí (er með frunsu, samt minnsta frunsa í Karíarsögu) 

  


» 13 hafa sagt sína skoðun

03.11.2007 14:39:43 / karitasg

Jólahjól ! :)

Hæhæ... Næstum því allir (þið vitið hverjir þið eruð sem ég er ekki að tala um) kommenta bara þegar þið viljið fá nýja færslu !! En ef þið mynduð alltaf kommenta, annað en að þið viljið nýja færslu þá myndi ég blogga miklu miklu oftar :) Þannig það er ykkar hagur að kommenta oftar !!

En annars þá er ekkert að slakna í djamminu hjá mér :)

Fyrir held ég 3 helgur fór ég í afmæli hjá Dagný Steinars, ekkert smá gaman, svona smá stelpu (og Hinni:) ) djamm :haha: Svo þegar allir fóru á Mörkina fór ég og Eva með Ásdísi heim til hennar, og hún bjó til GUÐDÓMLEGAR NÚÐLUR !!! Hefði aldrei trúað því að núðlur gætu verið svona góðar 8|

Svo á laugardeginum fór ég, Guðmunda og EsterEir í bústað til Hafdísar, Bjössa, Erlu, Fanna og krakkanna ! Það var ekkert smá næst, farið í pottinn, drukkið hvítvín, borðað, spilað og spjallað langt fram á nótt !! Ekkert smá skemmtilegt ! :P Mæli með svona rólindis bústaðarferðum :)

 

Síðustu helgi var ferðinni haldið í Borg Óttans í afmæli hjá honum Stefáni sætabrauði !! Þar var drukkið og spjallað... Svo kíktu allir í bæinn, eða flestir ! Ásdís og co þurftu að fara snemma afþví að Ásdís var á sumardekkjum og haldiði ekki bara að það hafi komið þessi fljúgandi hálka !! :|  En allavegana þá fórum við niðrí bæ, en nenntum svo ekki að bíða í röð, plús það að snillingurinn ég gleymdi veskinu mínu og var ekki með nein skilríki á mér !!! Þannig ég, Þórdís og Elísa fórum bara heim :)

 

Svo í gær þá fór ég á skólaball !!! Og guð minn góður það var svvvvvvo gaman !!! :haha:  Hef ekki skemmt mér svona vel bara heillengi ;) ÞAð var sko daaansað, og dansað... og dansað  !! Vorum allar orðar alveg kófsveittar, enda fullt af fólki og brjálaður hiti á dansgólfinu :) Svo var farið á Mörkina og keypt sér einn bjór og haldið heim á leið... Enda orðin vel þreytt í fótunum eftir allann dansin á háu hælunum ;)

 

Dance  Dance

 

 

Spurning að fara svo að taka því rólega, heheh 8) 

 

Vill bara minna á að ég útskrifast 21 desember !!! Skal fara að setja inn gjafaóskalista, náttlega erfitt fyrir þá nánustu að þurfa að kaupa útskriftar- og jólagjöf, enda bara 3 dagar á milli !! :haha:  En ég vorkenni ykkur sko EKKI BAUN, múhahahah :haha::haha:

 

En jæja, er að setja inn myndir frá gærkvöldinu, þær verða komnar inn seinnipartinn !

 

Gott í bili bara... vonandi líður styttri tími í næsta blogg... you know what to do !! ;) 


» 15 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 68319
Klukkan